← Allar fréttir

Al­þjóð­legur minningardagur trans fólks er 20. nóvember

Hún stendur fyrir utan snyrtistofuna og hikar.

Dyrnar eru opnar, ljósin kveikt, allt eins og það á að vera. Hún veit samt sem áður ekki hvort hún sé velkomin inn. Hún veit ekki hvort einhver muni horfa á hana lengur en góðu hófi gegnir, hvort spurt verði um nafnið hennar með þeim tón sem virðist skera úr um tilverurétt hennar.

Svo hún stendur kyrr.

Kannski fer hún inn. Kannski snýr hún við og fer heim.

Þetta augnablik sést ekki í neinni tölfræði. Það ratar ekki í fréttir. Það er þarna, á hverjum degi, hjá trans fólki um allt land.

Þetta litla hik við dyrnar. Þessi stöðugi útreikningur á því hvar sé óhætt að vera maður sjálfur.

Við tölum gjarnan um bakslagið gegn réttindum trans fólks eins og það sé eitthvað stórt og fjarlægt. Um lög sem sett eru í öðrum löndum, harðnandi orðræðu á opinberum vettvangi og tilraunir til að þrengja aðgang að heilbrigðisþjónustu.

Allt þetta er satt og allt þetta er alvarlegt, en bakslagið byrjar ekki þar.

Það byrjar við dyrnar á snyrtistofunni.

Stóru breytingarnar spretta nefnilega ekki upp úr tómarúmi. Þær vaxa úr jarðvegi hinna smáu áreita: rangrar kynjunar sem enginn biðst afsökunar á, athugasemdanna á vinnustaðnum, augnaráðanna í sundi, spurninganna um hvort þetta sé nú ekki bara tískubóla.

Hvert um sig virðist þetta smátt. En þetta leggst allt saman.

Trans manneskja lærir að vera sífellt á verði. Að meta hverja aðstöðu áður en hún stígur inn í hana. Að bera með sér sömu spurninguna hvert sem hún fer:

Er óhætt að vera til hér?

Það er þreytandi með þeim hætti sem erfitt er að lýsa fyrir þeim sem aldrei hefur þurft að spyrja.

Þegar samfélag venst því að ræða tilvist heils hóps eins og hún sé bara „álitamál“ verður fólk smám saman að hugmyndafræði í stað þess að vera fólk af holdi og blóði. Þá hættum við að sjá manneskjuna fyrir framan okkur.

Litlu áreitin eru stóra bakslagið í smáum skömmtum.

Sem guðfræðingur trúi ég því að hver manneskja sé sköpuð í Guðs mynd.

Ekki sumar manneskjur.

Allar.

Kjarni þess boðskapar sem ég hef helgað mig er einfaldur: náunginn á rétt á skjóli, og sá réttur er ríkastur þar sem hann stendur höllustum fæti.

Að standa með jaðarsettum er ekki frávik frá kristnum gildum. Það er þungamiðja þeirra.

20. nóvember minnumst við þeirra trans einstaklinga sem hafa látið lífið.

Þau dóu ekki vegna „pólitískra deilumála“. Mörg þeirra voru myrt. Önnur höfðu búið við höfnun, einangrun og vanlíðan sem samfélagið verður að taka ábyrgð á.

Minning þeirra leggur okkur skyldur á herðar. Ekki aðeins að syrgja í fjarlægð, heldur að breyta því hvernig við mætum hvert öðru við dyrnar.

Á vinnustaðnum. Í búðinni. Í sundi.

Í öllu samfélaginu.

Í ár langar okkur hjá Trans vinum að fylla þennan dag af skjóli.

Það má gera á margan hátt: með orðum, með nærveru, með því einu að bera merki sem segir öðrum að hjá þér eigi þau skjól.

Við upprætum ekki stóra bakslagið með einni yfirlýsingu.

Við upprætum það með því að taka litlu áreitin alvarlega. Skref fyrir skref. Þar til manneskjan fyrir utan snyrtistofuna þarf ekki lengur að hika.

Þar til hún getur gengið inn óhikað.

Þú átt skjól hjá mér.

Það er ekki gjöf sem við veitum af náð.

Það er skylda sem við berum hvert gagnvart öðru og loforð sem samfélagið allt á að geta staðið við.

Höfundur er formaður Trans vina.