Fyrstu skref þegar barn eða ungmenni kemur út

Hvað á ég að gera núna?

Fyrstu skrefin.

Andaðu! Það má hafa áhyggjur en það hafa fleiri gengið í gegnum þetta og við erum hér sem stuðningur. Þetta virðist vera mjög mikið fyrst en við skulum reyna að einfalda þetta svolítið fyrir ykkur.

Við erum með Facebook hóp þar sem er hægt að setja inn spurningar, fá ráðgjöf eða stuðning. Þetta er lokaður hópur og engum hleypt inn sem á ekki erindi þangað svo endilega sendu stjórnendum síðunar póst til að ganga í hópinn. Hópurinn er lokaður þar sem mikið af trans börnum og ungmennum hérlendis lifa sem sitt rétta sjálf án vitneskju annara.

Samtökin ´78 bjóða uppá fræðslu og ráðgjöf sem er endurgjaldslaus. Hægt að panta ráðgjöf hér.

Samtökin ´78 eru líka með stuðningsfundi fyrir foreldra og aðstandendur síðasta miðvikudag í mánuði kl.20 á Suðurgötu 3, 101 Reykjavík.

Það er hægt að senda okkur tölvupóst og við aðstoðum eftir bestu getu. Samtökin ´78 er líka með mikið af upplýsingum.