Markmið Trans vina

  • Efla félagsleg tengsl á meðal foreldra og forsjáraðila trans barna, ungmenna og fullorðinna trans einstaklinga.

  • Stuðla að félagslífi fyrir börn og ungmenni sem eru trans og þeirra sem eru ekki viss um sína kynvitund.

  • Styrkja og stuðla að frumkvæði foreldra og forsjáraðila trans einstaklinga, til að standa fyrir viðburðum þar sem allir félagsmenn Trans vina skulu hafa jafnan kost á að vera þátttakendur.

  • Standa fyrir viðburðum fyrir alla félagsmenn og fjölskyldur minnst tvisvar á ári og taka þátt í Hinsegin dögum.

  • Auka samstöðu og samheldni foreldra og forsjáraðila trans eintaklinga og fjölskyldna þeirra sem taka þátt í starfsemi Trans vina.

  • Vera vettvangur fyrir foreldra og forsjáraðila að kynnast hinsegin samfélaginu, að styrkja barnið sitt og veita þeim stuðning í formi fræðslu og félagsskapar.

  • Vera þrýstihópur til að koma málefnum okkar á framfæri. Þar á meðal gagnvart stjórnvöldum, heilbrigðiskerfinu og öðrum stofnunum sem koma að okkur málefnum.