← Allar fréttir

Heili trans barna og ungmenna líkist kynvitund þeirra, en ekki úthlutuðu líffræðilegu kyni

27.5.2026

Samkvæmt nýrri rannsókn gætum við bókstaflega verið að tala um heila stúlkna sem er fastur í líkama stráka, og öfugt.

Rannsóknin, þar sem notuð var segulómun (MRI) við skoðun á trans börnum og unglingum, leiddi í ljós að heilastarfsemi þeirra líktist meira starfsemi hjá sís-kynja* einstaklingum af því kyni sem þau upplifa sig sem, fremur en því kyni sem þeim var úthlutað við fæðingu. Þetta styður fyrri rannsóknir á fullorðnum og bendir til þess að munur á heila, sem tengist kynvitund, geti verið til staðar frá unga aldri. Rannsakendur telja að þessar niðurstöður geti stuðlað að fyrri og árangursríkari stuðningi við trans fólk.

„Þrátt fyrir að þörf sé á frekari rannsóknum höfum við nú vísbendingar um að kynbundinn þroski heilans sé annar hjá ungu fólki með kynama. Þau sýna starfræna heilaeiginleika sem eru dæmigerðir fyrir það kyn sem þau upplifa sig sem,“ sagði Bakker. „Við verðum þá betur í stakk búin til að styðja þetta unga fólk, í stað þess að senda það bara til geðlæknis og vona að vanlíðan þess hverfi af sjálfu sér.“

Niðurstöður rannsóknarinnar, sem kynntar voru á ráðstefnu Evrópsku innkirtlafræðisamtakanna (European Society of Endocrinology), eru í samræmi við fyrri taugafræðilegar rannsóknir. Þær hafa sýnt að trans fólk hefur sambærilega heilabyggingu og sís-kynja fólk sem deilir með þeim sömu kynvitund (frekar en þeirra líffræðilega fæðingarkyni).

Sís-kynja (cis): Fólk sem upplifir sig í samræmi við það líffræðilega kyn sem því var úthlutað við fæðingu.

Sjá nánar um rannsóknina hér.