Eins og lítil falleg blóm sem eru að opna sig í moldviðri
28.9.2026
Í nýju viðtali á RÚV stíga tveir læknar úr trans teymi barna og unglinga á Landspítalanum, Björn Hjálmarsson barnageðlæknir og Ragnar Bjarnason barnainnkirtlalæknir, fram og svara þeirri hörðu umræðu sem geisað hefur um trans börn að undanförnu.
Boðskapur þeirra er skýr: trans er ekki geðsjúkdómur, og enginn faraldur er í gangi heldur veruleiki sem loksins fær að koma í ljós eftir því sem viðhorf og lög batna. Trans börn hafa alltaf verið til. Meðferð hér á landi er varkár og fagleg, og ekkert barn fer í kynstaðfestingaferli.
Í öllu moldviðrinu minna læknarnir okkur á það sem mestu máli skiptir: börnin sjálf, sem eru eins og lítil, falleg blóm að opna sig þrátt fyrir storminn.
Við hvetjum öll til að hlusta og lesa viðtalið.