← Allar fréttir

Algóritminn og bakslagið

12.11.2026

Miðvikudaginn 11. nóvember stóðu NORDREF, Samtökin ‘78, Transfeminiinit og OFSI fyrir ráðstefnu á Grand hóteli um áhrif algóritma, gervigreindar og upplýsingaóreiðu á umræðuna um réttindi hinsegin fólks og jafnrétti á Norðurlöndum. Ráðstefnan fór fram á ensku, var opin öllum og aðgangur ókeypis.

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, flutti opnunarávarp. Nelli Ruotsalainen frá Transfeministit kynnti nýja rannsóknarskýrslu og Axel Bjarki úr ráðgjafarhópi umboðsmanns barna brást við niðurstöðunum.

Í tveimur pallborðum var rætt hver móti hugmyndir okkar um hinsegin réttindi og hvernig verja megi norræn gildi um lýðræði og jafnrétti. Þar tóku meðal annars þátt María Rut Kristinsdóttir alþingismaður, Kári Garðarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna ‘78, Einar Þorsteinsson borgarfulltrúi, Haukur Brynjarsson frá Netvís og Kjartan Dall-Larsen frá TikTok. Einnig var kynnt verkefnið Find Your (Algo)Rhythm, sem miðar að því að styðja ungmenni og foreldra á Íslandi og í Finnlandi. Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna ‘78, sleit ráðstefnunni.

Tvær úr Trans vinum sátu ráðstefnuna. Það sem sat helst eftir hjá okkur var hversu ólíkt kynslóðirnar upplifa samfélagsmiðla og gervigreind. Börnin okkar og ungmennin alast upp inni í þessum heimi og það sem algóritmarnir sýna þeim mótar hvernig þau skilja sig sjálf og hvernig aðrir líta á þau. Á ráðstefnunni var meðal annars rætt hvernig vernda megi börn fyrir óæskilegu efni og dulinni umræðu sem dregur tilvist trans fólks í efa. Slík umræða birtist oft ekki sem bein andúð heldur sem „spurningar“ eða „áhyggjur“, og þess vegna er auðvelt fyrir fólk að missa af henni.

Við þökkum skipuleggjendum fyrir mikilvægt framtak. Hér er hlekkur að skýrslunni.